Naprapat
Naprapat – sérhæfir sig í stoð- og taugakerfinu
Bóka tímaFáðu nákvæma greiningu á þínu stoð- og taugakerfi.
Hvað meðhöndlum við?
- Bak
- Háls
- Höfuð
- Axlir
- Hné
- Hendur
- Fætur
Naprapat sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoð- og taugakerfis.

NaprapatGreining og meðhöndlun
Við byrjum á ítarlegri sjúkrasögu, skoðun og nákvæmri greiningu. Meðhöndlunin getur falið í sér hnykkingar, drop technique, meðhöndlun á bandvef og sérsniðnar æfingar fyrir þín stoðkerfisvandamál.
Íþróttanudd
Við bjóðum einnig upp á íþróttanudd. Ýmsar djúpvöðvanudd- og teygjuaðferðir eru notaðar. Nuddið er ekki einungis fyrir íþróttafólk, heldur einnig fyrir þá sem finna fyrir líkamlegri spennu og eymslum, hvort sem það kemur frá vinnu, íþróttum eða öðru.
Bóka íþróttanudd hjá:
Finna næsta lausa tíma:
Um naprapati
Hvað er naprapat?
- Naprapat sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoð- og taugakerfis.
- Naprapat er stærsta stoðkerfismeðhöndlun og sú sem hraðast vex í Skandinavíu.
- Naprapat er ein árangursríkasta meðhöndlunin á stoðkerfisvandamálum ef litið er til rannsókna.
- 6 af hverjum 10 Svíum kjósa fremur naprapat meðhöndlun en aðra meðhöndlun.
- Naprapatar í Skandinavíu eru rúmlega 2200 talsins og samtals meðhöndla þeir um 3 milljónir manna ár hvert.
- Naprapat er löggilt heilbrigðisstétt í Skandinavíu.
Hvað gerir naprapat?
- Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til þess að meðhöndla þig á öruggan og árangursríkan hátt.
- Naprapat leitast við að ná þér sársaukalausum sem fyrst, ásamt því að finna og rétta til ástæðuna fyrir verkjunum (sem getur leynst í stoð- eða taugakerfinu).
- Meðhöndlun naprapats getur meðal annars falist í drop technique (mest notuð), hnykkingum, meðhöndlun á bandvef (connective tissue) ásamt sérsniðnum æfingum fyrir þitt stoðkerfisvandamál.
- Naprapat meðhöndlar nánast allt sem við kemur stoðkerfinu s.s. verki í baki, hálsi, höfði, öxlum, hnjám, höndum og fótum.
Hvað gerist í fyrsta tíma?
- Sjúkrasaga. Við förum ítarlega yfir sjúkrasöguna í fyrsta tíma og út frá því getum við hafið skoðun.
- Skoðun og greining. Næst förum við yfir skoðun og greiningu, þar förum við vel yfir stoð- og taugakerfið og hreyfigreiningu.
- Meðhöndlun. Strax í fyrsta tíma hefst meðhöndlun.
- Endurhæfing og heimaæfingar. Út frá sjúkrasögu og greiningu setjum við upp plan sem er sérsniðið að þínum stoðkerfisvandamálum bæði hvað varðar endurhæfingu, heimaæfingar og meðhöndlun.
Verð
Fyrsti tími
Endurkoma
10 tíma kort
Íþróttanudd
30 mín
50 mín
Meðmæli
„Eftir að hafa verið í sjúkraþjálfun meira eða minna í fimm ár vegna bakverkja var mér bent á að prófa að fara til naprapat. Greiningin og áherslurnar í meðhöndluninni voru allt aðrar hjá naprapatanum. Eftir u.þ.b. sjö skipti hjá naprapatinum þá var ég orðinn góður í bakinu. Það sem mestu máli skiptir er að hjá naprapatanum lærði ég hvernig ég á að fyrirbyggja framtíðarbakvandamál.“
Maður, 54 ára
„Taugalæknirinn minn sendi mig til naprapata vegna skelfilegra höfuðverkja sem ég hafði þurft að þola nánast daglega í 10 ár. Nú fjórum mánuðum eftir að ég byrjaði hjá naprapatanum þá er ég verkjalaus. Takk takk takk :)“
Kona, 32 ára
„Ég lenti í bílslysi fyrir 5 árum og er búin að vera verkjuð í hálsi og öxlum ásamt því að vera með ákaflega óþægilegan svima. Ég var farin að taka óheyrilega mikið af lyfjum bara til þess að komast í gegnum daginn. Heimilislæknirinn minn benti mér á að fara til naprapat. Nú aðeins nokkrum vikum síðar er sviminn farinn og ég nánast verkjalaus. Ég geri mínar skrítnu æfingar fyrir miðtaugakerfið og balanskerfin sem naprapatinn sendi á mig með gleði því nú sé ég fram á verkjalaust líf!“
Kona, 27 ára
Spurt og svarað
Hvað er naprapat?
Naprapat greinir og meðhöndlar verki og vandamál í stoð- og taugakerfinu, til dæmis í baki, hálsi, herðum og höfði. Meðferðin byggir á ítarlegri skoðun og sameinar handvirka meðhöndlun, teygjur, æfingar og leiðbeiningar um það sem þú getur gert heima.
Hvað gerist í fyrsta tíma?
Við byrjum á ítarlegri sjúkrasögu og skoðun, förum svo yfir stoð- og taugakerfið og hreyfigreiningu. Meðhöndlun hefst strax í fyrsta tíma, og út frá greiningunni setjum við upp plan með endurhæfingu, heimaæfingum og meðhöndlun sem er sniðið að þér.
Hvað kostar tíminn?
Fyrsti tími kostar 17.900 kr., endurkoma 8.500 kr. og 10 tíma kort 70.000 kr. Íþróttanudd kostar 10.000 kr. (30 mín) eða 16.500 kr. (50 mín).
Fæ ég niðurgreiðslu frá stéttarfélagi?
Mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar við meðferð hjá naprapat. Réttindin eru mismunandi eftir félögum, svo athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvað er endurgreitt og hvaða gögn þarf að skila inn. Þú getur fengið kvittun hjá okkur eftir tímann.
Þarf ég tilvísun frá lækni?
Nei, þú þarft ekki tilvísun. Þú bókar tíma beint á netinu.
Hvernig bóka ég tíma?
Þú bókar á netinu hjá Hjörvari, Arnóri eða Leifi í bókunarkerfinu Noona. Fyrir tíma hjá Guttormi sendir þú beiðni í gegnum prófílinn hans hér á síðunni og hann hefur samband til að staðfesta tímann.
Hvar eruð þið og hvenær er opið?
Við erum á Bæjarlind 6 í Kópavogi. Opið er mánudaga til föstudaga kl. 8:00–17:00.
Hvað er íþróttanudd?
Ýmsar djúpvöðvanudd- og teygjuaðferðir eru notaðar. Nuddið er ekki einungis fyrir íþróttafólk, heldur einnig fyrir þá sem finna fyrir líkamlegri spennu og eymslum, hvort sem það kemur frá vinnu, íþróttum eða öðru.
Hafa samband
Naprapat ehf.
Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Sími: 625 0011
Netfang: info@naprapat.is
Opnunartími: mánudaga–föstudaga kl. 8:00–17:00
Guttormur Brynjólfsson
Doktor í Naprapathy, sérfræðingur í stoð- og taugakerfinu
Naprapat / Dr of Naprapathy
1996 útskrifaðist Guttormur sem Doctor of Naprapathy / Naprapat frá Naprapathögskolan (www.nph.se). Að því loknu lá leiðin til Spánar þar sem hann rék sína naprapatstöð (www.nattcenter.com) í 22 ár.
Guttormur hefur alla tíð leitast við að bæta sína meðhöndlun og þekkingu, m.a. lærði hann „Brain balance“ í Carrick Institute (hvernig miðtaugakerfið hefur áhrif á m.a. stoðkerfið). Í Washington (USA) lærði hann „advanced acupressure + dynamic joint recovery“, í Svíþjóð nálastungur (pain treatment), árið 2011 lærði hann Graston Technique í Englandi (var sá fyrsti með viðurkennda diplómu í Graston á Spáni). Guttormur hefur brennandi áhuga á taugafræði og sækir því kúrsa reglulega á því sviði.
Með meðhöndlun sinni hefur Guttormur náð sér í gott orðspor á Spáni og alþjóðlega, m.a. hafa komið til hans fótboltamenn úr Premier League, hann hefur verið fenginn til Liverpool FC og FC Barcelona til að meðhöndla svo eitthvað sé nefnt. Fyrir Guttormi eru allir sjúklingar jafnir og er það kappsmál hans og ánægja að geta hjálpað sem flestum.
Sími: 625 0011
Netfang: gutti@naprapat.is
Beiðni um tíma hjá Guttormi
Þetta er beiðni, ekki staðfest bókun. Gutti hefur samband og staðfestir tímann.
Vilt þú frekar hringja? 625 0011 · gutti@naprapat.is
Hjörvar Sigurgeirsson
Naprapat / Dr of Naprapathy
Hjörvar Sigurgeirsson útskrifaðist sem Naprapat í janúar 2023. Hann hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hreyfingu og almennri heilsu og byrjaði snemma að læra um líkamann og þjálfun í íþróttadeild VMA. Hjörvar hefur starfað sem naprapat síðan hann útskrifaðist en einnig hefur hann starfað við styrktar- og einkaþjálfun, þjálfun yngri flokka í fótbolta og sem nuddari. Samhliða Naprapatanum hefur hann einnig unnið sér inn réttindi í Dry-needling, nuddi og einkaþjálfun.
Sími: 692 6713
Netfang: hjorvar@naprapat.is
Arnór Gauti Brynjólfsson
Naprapat / Dr of Naprapathy
Arnór Gauti Brynjólfsson útskrifaðist sem Naprapat árið 2023. Arnór Gauti hefur starfað sem Naprapat síðan hann útskrifaðist bæði í Svíþjóð og á Íslandi ásamt því að vinna sem styrktarþjálfari fyrir meistaraflokka Fylkis í knattspyrnu.
Samhliða vinnu hefur hann farið á ótal mörg námskeið í taugafræði og endurhæfingu á meiðslum hjá íþróttafólki. Arnór Gauti hefur sérlegan áhuga á meiðslum íþróttafólks, sem og vandamálum tengdum stoðkerfinu.
Sími: 778 7530
Netfang: arnor@naprapat.is
Leifur Guðjónsson
Naprapat / Dr of Naprapathy
Leifur útskrifaðist sem naprapat árið 2026. Hann hefur alla tíð haft mikinn áhuga á líkamsrækt, hreyfingu og því hvernig líkaminn starfar. Samhliða því hefur hann lengi starfað sem fótboltaþjálfari, bæði á Íslandi og í Svíþjóð.
Samhliða námi og störfum hefur Leifur aflað sér fjölbreyttrar þekkingar og réttinda á sviði heilsu og hreyfingar, meðal annars í dry needling, nuddi og einkaþjálfun.
Leifur leggur sérstaka áherslu á að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og vinna út frá þörfum og markmiðum hvers og eins. Markmiðið er að bæta hreyfigetu og líðan og hjálpa fólki að ná betri færni, hvort sem það er í daglegu lífi, líkamsrækt eða íþróttum.
Sími: 883 2422
Netfang: leifur@naprapat.is



