Naprapat

Naprapat – sérhæfir sig í stoð- og taugakerfinu

Bóka tíma

Fáðu nákvæma greiningu á þínu stoð- og taugakerfi.

Hvað meðhöndlum við?

  • Bak
  • Háls
  • Höfuð
  • Axlir
  • Hné
  • Hendur
  • Fætur

Naprapat sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoð- og taugakerfis.

Tvær manneskjur að spjalla eftir æfingu

NaprapatGreining og meðhöndlun

Við byrjum á ítarlegri sjúkrasögu, skoðun og nákvæmri greiningu. Meðhöndlunin getur falið í sér hnykkingar, drop technique, meðhöndlun á bandvef og sérsniðnar æfingar fyrir þín stoðkerfisvandamál.

Bóka tíma

Íþróttanudd

Við bjóðum einnig upp á íþróttanudd. Ýmsar djúpvöðvanudd- og teygjuaðferðir eru notaðar. Nuddið er ekki einungis fyrir íþróttafólk, heldur einnig fyrir þá sem finna fyrir líkamlegri spennu og eymslum, hvort sem það kemur frá vinnu, íþróttum eða öðru.

Bóka íþróttanudd hjá:

Finna næsta lausa tíma:

Um naprapati

6 af 10Svíar kjósa fremur naprapat meðhöndlun en aðra meðhöndlun
2200+naprapatar í Skandinavíu
3 milljónirmanna meðhöndlaðar ár hvert í Skandinavíu
Hvað er naprapat?
  • Naprapat sérhæfir sig í greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoð- og taugakerfis.
  • Naprapat er stærsta stoðkerfismeðhöndlun og sú sem hraðast vex í Skandinavíu.
  • Naprapat er ein árangursríkasta meðhöndlunin á stoðkerfisvandamálum ef litið er til rannsókna.
  • 6 af hverjum 10 Svíum kjósa fremur naprapat meðhöndlun en aðra meðhöndlun.
  • Naprapatar í Skandinavíu eru rúmlega 2200 talsins og samtals meðhöndla þeir um 3 milljónir manna ár hvert.
  • Naprapat er löggilt heilbrigðisstétt í Skandinavíu.
Hvað gerir naprapat?
  • Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til þess að meðhöndla þig á öruggan og árangursríkan hátt.
  • Naprapat leitast við að ná þér sársaukalausum sem fyrst, ásamt því að finna og rétta til ástæðuna fyrir verkjunum (sem getur leynst í stoð- eða taugakerfinu).
  • Meðhöndlun naprapats getur meðal annars falist í drop technique (mest notuð), hnykkingum, meðhöndlun á bandvef (connective tissue) ásamt sérsniðnum æfingum fyrir þitt stoðkerfisvandamál.
  • Naprapat meðhöndlar nánast allt sem við kemur stoðkerfinu s.s. verki í baki, hálsi, höfði, öxlum, hnjám, höndum og fótum.

Hvað gerist í fyrsta tíma?

  1. Sjúkrasaga. Við förum ítarlega yfir sjúkrasöguna í fyrsta tíma og út frá því getum við hafið skoðun.
  2. Skoðun og greining. Næst förum við yfir skoðun og greiningu, þar förum við vel yfir stoð- og taugakerfið og hreyfigreiningu.
  3. Meðhöndlun. Strax í fyrsta tíma hefst meðhöndlun.
  4. Endurhæfing og heimaæfingar. Út frá sjúkrasögu og greiningu setjum við upp plan sem er sérsniðið að þínum stoðkerfisvandamálum bæði hvað varðar endurhæfingu, heimaæfingar og meðhöndlun.

Bókaðu tíma hjá þínum naprapat

Verð

17.900 kr.

Fyrsti tími

8.500 kr.

Endurkoma

70.000 kr.

10 tíma kort

Íþróttanudd

10.000 kr.

30 mín

16.500 kr.

50 mín

Meðmæli

„Eftir að hafa verið í sjúkraþjálfun meira eða minna í fimm ár vegna bakverkja var mér bent á að prófa að fara til naprapat. Greiningin og áherslurnar í meðhöndluninni voru allt aðrar hjá naprapatanum. Eftir u.þ.b. sjö skipti hjá naprapatinum þá var ég orðinn góður í bakinu. Það sem mestu máli skiptir er að hjá naprapatanum lærði ég hvernig ég á að fyrirbyggja framtíðarbakvandamál.“

Maður, 54 ára

„Taugalæknirinn minn sendi mig til naprapata vegna skelfilegra höfuðverkja sem ég hafði þurft að þola nánast daglega í 10 ár. Nú fjórum mánuðum eftir að ég byrjaði hjá naprapatanum þá er ég verkjalaus. Takk takk takk :)“

Kona, 32 ára

„Ég lenti í bílslysi fyrir 5 árum og er búin að vera verkjuð í hálsi og öxlum ásamt því að vera með ákaflega óþægilegan svima. Ég var farin að taka óheyrilega mikið af lyfjum bara til þess að komast í gegnum daginn. Heimilislæknirinn minn benti mér á að fara til naprapat. Nú aðeins nokkrum vikum síðar er sviminn farinn og ég nánast verkjalaus. Ég geri mínar skrítnu æfingar fyrir miðtaugakerfið og balanskerfin sem naprapatinn sendi á mig með gleði því nú sé ég fram á verkjalaust líf!“

Kona, 27 ára

Spurt og svarað

Hvað er naprapat?

Naprapat greinir og meðhöndlar verki og vandamál í stoð- og taugakerfinu, til dæmis í baki, hálsi, herðum og höfði. Meðferðin byggir á ítarlegri skoðun og sameinar handvirka meðhöndlun, teygjur, æfingar og leiðbeiningar um það sem þú getur gert heima.

Hvað gerist í fyrsta tíma?

Við byrjum á ítarlegri sjúkrasögu og skoðun, förum svo yfir stoð- og taugakerfið og hreyfigreiningu. Meðhöndlun hefst strax í fyrsta tíma, og út frá greiningunni setjum við upp plan með endurhæfingu, heimaæfingum og meðhöndlun sem er sniðið að þér.

Hvað kostar tíminn?

Fyrsti tími kostar 17.900 kr., endurkoma 8.500 kr. og 10 tíma kort 70.000 kr. Íþróttanudd kostar 10.000 kr. (30 mín) eða 16.500 kr. (50 mín).

Fæ ég niðurgreiðslu frá stéttarfélagi?

Mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar við meðferð hjá naprapat. Réttindin eru mismunandi eftir félögum, svo athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvað er endurgreitt og hvaða gögn þarf að skila inn. Þú getur fengið kvittun hjá okkur eftir tímann.

Þarf ég tilvísun frá lækni?

Nei, þú þarft ekki tilvísun. Þú bókar tíma beint á netinu.

Hvernig bóka ég tíma?

Þú bókar á netinu hjá Hjörvari, Arnóri eða Leifi í bókunarkerfinu Noona. Fyrir tíma hjá Guttormi sendir þú beiðni í gegnum prófílinn hans hér á síðunni og hann hefur samband til að staðfesta tímann.

Hvar eruð þið og hvenær er opið?

Við erum á Bæjarlind 6 í Kópavogi. Opið er mánudaga til föstudaga kl. 8:00–17:00.

Hvað er íþróttanudd?

Ýmsar djúpvöðvanudd- og teygjuaðferðir eru notaðar. Nuddið er ekki einungis fyrir íþróttafólk, heldur einnig fyrir þá sem finna fyrir líkamlegri spennu og eymslum, hvort sem það kemur frá vinnu, íþróttum eða öðru.

Hafa samband

Naprapat ehf.
Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Sími: 625 0011
Netfang: info@naprapat.is
Opnunartími: mánudaga–föstudaga kl. 8:00–17:00

Sjá á korti

Verkir

Algeng svæði þar sem verkir eiga upptök sín, með leiðbeiningum og æfingum sem þú getur prófað sjálf/ur.

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Sternocleidomastoideus

Teygjuæfing fyrir Sternocleidomastoideus

Trigger-punktar Sternocleidomastoideus

Trigger-punktar Sternocleidomastoideus – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Trapezius

Teygjuæfing fyrir Trapezius

Trigger-punktar Trapezius

Trigger-punktar Trapezius – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Levator scapulae

Teygjuæfing fyrir Levator scapulae

Trigger-punktar Levator scapulae

Trigger-punktar Levator scapulae – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Occipitalis

Teygjuæfing fyrir Occipitalis

Trigger-punktar Occipitalis

Trigger-punktar Occipitalis – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Rhomboideus

Teygjuæfing fyrir Rhomboideus

Trigger-punktar Rhomboideus

Trigger-punktar Rhomboideus – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Piriformis

Teygjuæfing fyrir Piriformis

Trigger-punktar Piriformis

Trigger-punktar Piriformis – leiðni verkja

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

← Verkir

Augnhreyfingar við höfuðverk, verk bak við augu og svima

Augnæfingar

Bóka tíma

Fyrsti tími 17.900 kr. · Endurkoma 8.500 kr. · 10 tíma kort 70.000 kr.

Persónuverndarstefna og vafrakökur

Hver erum við?

Naprapat ehf., Bæjarlind 6, 201 Kópavogur. Netfang: info@naprapat.is, sími 625 0011. Við berum ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á þessari vefsíðu.

Tímabókanir

Tímabókanir fara fram í bókunarkerfinu Noona. Upplýsingarnar sem þú gefur þar upp (t.d. nafn, símanúmer og netfang) eru unnar af Noona og af okkur vegna þjónustunnar. Vinnsla Noona fer eftir persónuverndarstefnu þeirra.

Beiðnir um tíma hjá Guttormi eru sendar í gegnum formþjónustuna Web3Forms, sem áframsendir þær til okkar í tölvupósti. Upplýsingarnar (nafn, símanúmer, kennitala, netfang og erindi) eru eingöngu notaðar til að svara beiðninni og bóka tímann.

Vafrakökur og mælingar

Síðan notar engar vafrakökur sem eru nauðsynlegar fyrir virkni hennar. Með þínu samþykki getum við notað mælingar- og auglýsingakökur frá Google (Google Analytics og Google Ads) og Meta (Facebook/Instagram) til að sjá hvernig síðan er notuð, mæla árangur auglýsinga og birta auglýsingar. Þessi verkfæri safna meðal annars upplýsingum um tæki þitt, vafra og hvaða síður þú skoðar. Ekkert af þessu er virkjað nema þú samþykkir það. Þú getur breytt eða dregið samþykkið til baka hvenær sem er með hlekknum „Vafrakökur“ neðst á síðunni.

Kort

Kortið á síðunni er frá Google Maps. Þegar það hleðst getur Google sett vafrakökur og fengið upplýsingar um heimsóknina samkvæmt sinni persónuverndarstefnu.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun á vinnslu og andmælum. Hafðu samband á info@naprapat.is. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).